Færsluflokkur: Dægurmál
26.4.2008 | 16:23
Guðlaugur Þór í líkamsrækt
Það er alveg ótrúlegt hvað Gulaugur Þór, Heilbrigðisráðherra, er vanhæfur, hann ætti kannske að fara í endurhæfingu hjá konu sinni Águstu.
Hann virðist ekki skilja að heilbrigðisstéttirnar, læknar og hjúkrunarfólk eiga allt gott skilið, sem dæmi má nefna, að ég væri ekki á lífi, nema vegna hjálpar þessa fólks á gjörgæsludeild, bæklunarskurðardeildum, Grensásdeild og Reykjalundi, eftir mjög alvarlegt slys.
Ég hef alltaf borgað mikla skatta, og sé alls ekki eftir því núna, eftir að fá að upplifa hversu heppin við Íslendingar erum að eiga svona gott heilbrigðisstarfsfólk.
Það er ýmislegt annað sem má skoða, eins og t.d. Tryggingarstofnun, sem ég, sem betur fer, hef aldrei þurft að nota fyrr en eftir slysið, sú stofnun þarf virkilega á endurhæfingu að halda, enda er nánast óskiljanlegt apparat.
Kannske mættu Ráðherrar og Alþingismenn, ganga fram og sýna okkur hinum, þessum vesalings almenningi, gott fordæmi.
Kannske er það rétt hjá Vinstri Grænum, að Guðlaugur Þór ætli að einkavæða heilbrigðisgeiran, sem má alls ekki gerast, ég bjó í Bandaríkjunum í 12 ár, og veit hvað það er dýrt, nema þú hafir tryggingar.
Auðvitað er heilbrigðiskerfið á Íslandi dýrt, en það borga þó allir, bæði ríkir og þeir sem minna meiga sín, mundu það Guðlaugur Þór.........
Stál í stál á Landspítala | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)